Ráðstefna Félags um skjalastjórn "Skjalastjórn í rafrænu umhverfi" var haldin þann 15. febrúar. Þátttakendur voru um 120 og var almennt mikil ánægja með dagskrá og skipulag ráðstefnunar. Meðal fyrirlesara var Catherine Hare sem nýverið lét af störfum sem skjalastjóri Sameinuðu Þjóðanna. Catherine hefur jafnframt gegnt stöðu lektors í upplýsinga- og skjalastjórn við Northumbria University í Bretlandi. Í tengslum við ráðstefnuna var haldið námskeið þann 16. febrúar og voru þátttakendur um 80. Námskeiðið nefndist "Understanding and explaining record management" og kennari var Catherine Hare.
Ráðstefnan og námskeiðið var skipulagt af ráðstefnunefnd félagsins, en hana skipuðu Inga Dís Karlsdóttir (formaður Félags um skjalastjórn), Ingunn Mjöll Birgisdóttir, Kristín Ósk Hlynsdóttir (varaformaður Félags um skjalastjórn), Magnea Davíðsdóttir (varamaður í stjórn Félags um skjalastjórn) og Svava H. Friðgeirsdóttir. Drjúgan þátt í undirbúningi átti einnig Bryndís Steinsson gjaldkeri félagsins, en félögum fjölgaði nokkuð fyrir ráðstefnuna. Glærur frá ráðstefnunni má finna neðst í þessari grein. Glærur (PDF) frá ráðstefnunni: Evrópskir ERDM staðlar - núið og framtíðin. Sveinn S. Hannesson Verkefnastjóri, Hugvit. Kröfur til rafrænna skjalastjórnarkerfa. Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir lektor við bókasafns- og upplýsingafræðiskor við Háskóla Íslands. Framúrskarandi árangur í rafrænni skjalastýringu með gæðastjórnun. Svala Rún Sigurðardóttir Forstöðumaður ráðgjafasviðs, FOCAL Software and Consulting. Skjalastjórn og stjórnsýslureglur. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. Rafræn skjalastjórn og langtímavarðveisla rafrænna gagna. Ásgerður Kjartansdóttir deildarstjóri skjala- og bókasafns menntamálaráðuneytis og Guðmundur Kjærnested framkvæmdastjóri rekstrarfélags stjórnarráðsbygginga. Skil á rafrænum gögnum RSK til Þ.Í. "Vörsluútgáfa VSK2000". Jón Jósef Bjarnason. Verkefnastjóri hjá Ríkisskattstjóra. |