Kristín Guðmundsdóttir heldur fyrirlestur um meðferð trúnaðarupplýsinga hjá ríkisstofnunum fimmtudaginn 23. febrúar kl. 12-13. Fundurinn fer fram í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1.
Kristín er MA í upplýsingafræði. Hún hefur starfað við upplýsinga- og öryggismál í yfir áratug hjá utanríkisráðuneytinu, varnarmálastofnun og nú ríkislögreglustjóra þar sem hún starfar sem sérfræðingur á öryggis- og löggæslusviði. Sérsvið hennar snýr m.a. að meðhöndlun trúnaðargagna og framkvæmd öryggisráðstafana við meðferð þeirra.