Um Félag um upplýsingastjórnun

Félag um skjalastjórn var stofnað 6. desember 1988.

Markmið félagsins er að efla þekkingu og skilning á upplýsinga- og skjalastjórn hjá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum; ennfremur að efla tengsl þeirra sem starfa við upplýsinga- og skjalastjórn og stuðla að samvinnu þeirra á milli. 

Félagið stendur fyrir námstefnum og fræðslufundum um ýmsa þætti skjalastjórnar. Aðild að félaginu er opin öllum þeim sem eru hlynntir markmiðum félagsins. 

Árgjald félagsins er 5.500 kr.

Á aðalfundi félagsins árið 2025 var samþykkt að breyta heiti félagsins í takt við breytingar á starfi skjalastjóra í Félag um upplýsingastjórnun.

Félag um upplýsingastjórnun
Pósthólf 8731
128 Reykjavík      kt. 580189-2029

Stjórn og nefndir starfsárið 2025-2026

Stjórn

Berglind Norðfjörð Gísladóttir, formaður
Jóhann V. Gíslason, varaformaður

Olga Sigurðardóttir, gjaldkeri (gjaldkeri(hjá)irma.is)
Halldóra Jónsdóttir, vefstjóri (vefstjori(hjá)irma.is)
Anna Einarsdóttir, ritari
Guðrún Lilja Kvaran, meðstjórnandi

Fræðslunefnd

  • Jóhann V. Gíslason
  • Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir

Stjórn félagsins skal skipuð sex félagsmönnum; formanni, varaformanni, sem jafnframt er formaður fræðslunefndar, ritara, gjaldkera, vefstjóra og meðstjórnanda.  Stjórnin skal kosin á aðalfundi, formaður og varaformaður eru kosnir sérstaklega og til tveggja ára í senn. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Kosning skal vera skrifleg ef ekki er sjálfkjörið. Enginn skal sitja í stjórn lengur en fjögur ár samfellt

Heiðursfélagar Félags um skjalastjórn

Guðrún Gísladóttir

Kristín Pétursdóttir – Gerð heiðursfélagi á 15 ára afmælisári félagsins 4. desember 2003

Jóhanna Gunnlaugsdóttir – Gerð heiðursfélagi á 20 ára afmælisfagnaði félagsins 5. desember 2008

Kristín Ólafsdóttir – Gerð heiðursfélagi á afmælisfagnaði félagsins 21. nóvember 2014

Svanhildur Bogadóttir – Gerð heiðursfélagi á afmælisfagnaði félagsinsins 21. nóvember 2014

Kristín Geirsdóttir – Gerð heiðursfélagi á Aðalfundi félagsins 29. apríl 2015

Ragnhildur Bragadóttir – Gerð heiðursfélagi á Aðalfundi félagsins 29. apríl 2015

Stefanía Júlíusdóttir – Gerð heiðursfélagi á jólafundi félagsins 3. desember 2015

Ásgerður Kjartansdóttir – Gerð heiðursfélagi á afmælisfundi félagsins 8. desember 2023