You are currently viewing Fræðslufundur 30. mars 2023 – Áskoranir skjalastjórans

Fræðslufundur 30. mars 2023 – Áskoranir skjalastjórans

Á fjórða fræðslufundi vetrarins verður fjallað um tæknilegar áskoranir sem skjalastjórinn er að glíma við í starfi sínu sem og aðrar áskoranir í starfsumhverfi hans.

Eru skjalastjórar að hlaupa nógu hratt í tæknimálum, er starfsumhverfi okkar að breytast, hvaða áhrif hefur sjálfvirknivæðing á starfið okkar?

Fyrirlesari er Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, MSc. í skjalastjórn, CIP.

Svava starfar sem skjalastjóri Arion banka hf. Hún hefur unnið við fagið frá árinu 1995 fyrst í Landsbanka Íslands, ANZA, Seðlabanka Íslands, Kaupþingi og í Arion banka. Svava er einnig prófdómari í upplýsingafræði við Háskóla Íslands og mun verða stundakennari við fagið næsta haust.

Skráning fer fram á síðunni okkar https://irma.is/events/streymi-fraedslufundur-askoranir-skjalastjorans-31-mars-2023/ og einnig hjá Dokkunni fyrir þau sem eru félagar þar https://dokkan.is/fundur/skjalastjornun-2/

Svava Halldóra