You are currently viewing Aðalfundur Félags um upplýsingastjórnun 2026

Aðalfundur Félags um upplýsingastjórnun 2026

Kæru félagar,

boðað er til aðalfundar Félags um upplýsingastjórnun. Fundarboð hefur verið sent á skráð netföng félagsfólks, vinsamlegast hafið samband við vefstjori@irma.is ef fundarboð hefur ekki skilað sér. Samþykkt fundarboð gildir sem skráning fyri rmætingu á fundarstað.

Fundartími: 30.apríl 2026 kl. 17:00

Fundarstaður: Flatey, Grandagarði 11

Gert ert ráð fyrir að gestir mæti á fundarstað.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Setning fundar
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
  4. Skýrsla fræðslunefndar um starfsemi nefndarinnar á liðnu starfsári
  5. Ársreikningur lagður fram til samþykktar
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  8. Kosning fræðslunefndar
  9. Önnur mál
  10. Fundi slitið

Framboð til stjórnar:

Við óskum eftir framboðum í stjórn þar sem þau Berglind Gísladóttir formaður og Jóhann V. Gíslason varaformaður eru að ljúka sínum tveimur árum. Stjórn félagsins skal skipuð sex mönnum. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Við hvetjum öll til að taka virkan þátt í starfi félagsins og bjóða sig fram til stjórnar.

Framboð skal senda á irma@irma.is

Að loknum aðalfundi verður boðið upp á veitingar og skemmtilegt Pub Quiz – tilvalið tækifæri til að eiga góðar stundir saman.

Með bestu kveðju,

Stjórn félags um upplýsingastjórnun