Þann 2. mars mun Félag um skjalastjórn halda ráðstefnu um þróun og stöðu upplýsinga.
Með vaxandi vitund um mikilvægi upplýsinga í viðskiptum og þjónustu er markviss stjórnun upplýsingaflæðis orðin lykilþáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er stjórnkerfi upplýsinga (Information Governance), hvar við stöndum, hvert við getum stefnt og hvaða skref við getum tekið í okkar starfsemi.
Fyrirlesarar búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni og munu þau nálgast efnið á ólíkan og fróðlegan hátt.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, dagskrá hennar og upplýsingar um skráningu má finna á síðu ráðstefnunnar https://radstefna.irma.is.