Fræðslufundur 22. janúar 2015 – Fimm þroskastig skjalavörslu. Gagnlegt mælitæki?

Um leið og við óskum ykkur gleðilegs nýs árs boðum við til fyrsta fræðslufundar ársins sem fram fer í hádeginu 22. janúar í Árnagarði, stofu 201 Háskóla Íslands. Helga Jóna Eiríksdóttir, skjalavörður, mun kynna einkunnarskala sem hún hefur verið að þróa fyrir stofnanir um stöðu þeirra í skjalavörslu. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og hlusta á áhugavert erindi.

Glærur