Fræðslufundur 31. janúar – Áramótafundur – Stafræn stefnumótun

Næsti fræðslufundur Félags um skjalastjórn verður haldinn fimmtudaginn 31. janúar kl. 17 í Þjóðskjalasafni Íslands.
Þetta er áramótafundur sem kemur í stað jólafundarins.

Charlotte Åström ætlar að segja okkur frá stafrænni stefnumótun. Stöðug tækniþróun og ör upptaka notenda á nýrri tækni hefur gjörbreytt heiminum og samkeppnisumhverfi fyrirtækja og stofnana. Nauðsynlegt er að aðilar geti þróast hraðar og komið á móts við breyttar kröfur samfélagsins um upplifun og þjónustu.

 

Skráning hér

Skráning í streymi hér, athugið að fyrirlesturinn verður ekki settur inn á vef félags um skjalastjórn síðar meir.

ATH: Félagsmenn þurfa að vera innskráðir til að geta skráð sig á viðburðinn
Hlökkum til að sjá ykkur!