CERT-IS Öryggi gagna í stafrænum heimi
Fræðslufundur Félags um skjalastjórn var haldinn fimmtudaginn 21. október kl. 12 í Þjóðskjalasafni Íslands. Einnig var streymt frá fundinum.
Október er alþjóðlegur netöryggismánuður. Í tilefni af því og í ljósi mikillar umræðu um netöryggismál undanfarið hefur Félag um skjalastjórn fengið Guðmund Arnar Sigmundsson, sviðsstjóra netöryggissveitarinnar Cert-IS til að fjalla um netöryggi á næsta fræðslufundi félagsins. Erindi Guðmundar, sem ber heitið Öryggi gagna í stafrænum heimi, mun fjalla um eftirfarandi:
- Almenn yfirferð á netöryggi. Hvað felst í orðinu og hvernig varpast það yfir á dagleg störf þeirra sem vinna með tölvur og netið?
- Hverjar eru helstu ógnir og hvernig er best að varast þær.
- Skýjalausnir eða sjálfhýsing?
- Stutt yfirferð yfir starfsemi CERT-IS.