You are currently viewing Skráning í fullum gangi á aðalfund 27. apríl 2023

Skráning í fullum gangi á aðalfund 27. apríl 2023

Við minnum á aðalfund Félags um skjalastjórn sem fer fram fimmtudaginn 27. apríl nk. kl. 16:30 í sal hjá Veðurstofu Íslands.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

    • Skýrsla stjórnar.
    • Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar.
    • Árgjald ákveðið.
    • Kosning stjórnar
    • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
    • Niðurstöður launakönnunar.
    • Önnur mál.

Við óskum eftir framboðum í stjórn þar sem þær Hulda og Elín eru að ljúka sínum fjórum árum. 
Stjórn félagsins skal skipuð sex mönnum. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Framboð óskast send á formadur@irma.is.  Eftir formlega dagskrá munum við bjóða upp á léttar veitingar og eiga góða stund saman.  

Hlökkum til að sjá sem flest

Stjórnin


Skráning á aðalfund