Fræðsludagur IRMA: Öryggisflokkun gagna og hagnýt notkun Purview
Félag um upplýsingastjórnun hélt nýverið fræðsludag um öryggisflokkun gagna og notkun Microsoft Purview.
Fyrirlesari var Anna Kristín Agnarsdóttir frá Crayon, sérfræðingur með víðtæka reynslu af ráðgjöf og innleiðingu á sviði gagnaöryggis. Berglind Norðfjörð Gísladóttir, formaður félagsins, opnaði viðburðinn og bauð þátttakendur velkomna.
Í erindi sínu fjallaði Anna Kristín um mikilvægi rekjanleika, skýrra ferla og réttra aðgangsheimilda í stafrænu umhverfi. Hún sýndi hvernig Purview styður öryggisflokkun, tengir hana við regluverk og tryggir að gervigreind, þar á meðal Copilot, byggi á réttum aðgangsstýringum. Þá lagði hún áherslu á að öryggisflokkun sé sameiginlegt verkefni stjórnenda, tæknideilda og eigenda gagna.
Hún fór einnig yfir hagnýt ráð um hvað ber að varast og lagði fram skýra nálgun í þremur skrefum:
- virk notendaþátttaka
- einföld og skýr flokkun
- sterk forysta
Eftir kaffihlé tók við gagnvirk Purview-sýnikennsla þar sem hún sýndi hvernig „sensitivity labels“ eru sett upp og prófuð í raunhæfum aðstæðum.
Mæting var afar góð, 75 manns voru mættir til leiks, og var lífleg umræða í salnum.
Félagið færði Önnu Kristínu blóm í þakklætisskyni fyrir framlag sitt og bauð upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni.
Glærurnar frá fræðsludeginum eru nú aðgengilegar fyrir félagsmenn á vefnum okkar irma.is
Aðalfundur félagsins
Um leið og við minnum á aðalfund Félags um upplýsingastjórnun þann 30. apríl næstkomandi óskum við ykkur öllum gleðilegar páska.
Með bestu kveðju,
Stjórn félags um upplýsingastjórnun

