Fræðslufundur 23. nóvember 2021 – Skjalageymslur og pappírsskjöl ríkisins – staða og stefna

Fræðslufundur 23. nóvember 2021 – Skjalageymslur og pappírsskjöl ríkisins – staða og stefna

Njörður Sigurðsson sviðstjóri skjala- og upplýsingasviðs hjá Þjóðskjalasafni Íslands fjallaði um skjalageymslur ríkisins.

Skjalageymslur og pappírsskjöl ríkisins – staða og stefna
Þjóðskjalasafn Íslands gaf út í september síðastliðnum skýrslu með niðurstöðum eftirlitskönnunar safnsins á skjalageymslum afhendingarskyldra aðila ríkisins sem framkvæmd var í júní í sumar. Í skýrslunni kemur fram að umfang pappírsskjala hjá ríkinu hefur aukist gífurlega á undanförnum árum og pappírsskjöl eru geymd á mörg þúsund fermetrum hjá stofnunum, embættum og fyrirtækjum ríkisins. Þessi þróun hefur orðið á sama tíma og nánast öll skjöl ríkisins eru mynduð í rafrænum gagnasöfnum og mikil áhersla er á stafræna umbreytingu stjórnsýslunnar. Í erindinu verður fjallað um þessa stöðu, samspil rafrænnar stjórnsýslu og skjalavörslu og skjalastjórnar og hvernig Þjóðskjalasafn vill takast á við þessa stöðu.