Fræðslufundur 29. mars 2022 – Markaðssetning skjalastjórnar

Fræðslufundur Félags um skjalastjórn var haldinn þriðjudaginn 29. mars 2022 kl. 12:00.

Gunnhildur Manfreðsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðhildur GM, mun fjalla um markaðssetningu skjalastjórnar, nokkuð sem skjalastjórar þurfa sífellt að huga að. Gunnhildur mun byggja á reynslu sinni sem ráðgjafi til fjölda ára og fjalla um hvernig best er að markaðssetja skjalastjórn gagnvart stjórnendum og starfsfólki, þannig að þau sjái tilganginn í skjalavistun og góðu utanumhaldi skjala.