You are currently viewing Hvað er stjórnkerfi upplýsinga?

Hvað er stjórnkerfi upplýsinga?

Af hverju dúkkar hugtakið stjórnkerfi upplýsinga (Information Governance) æ oftar upp í tengslum við rekstur fyrirtækja og stofnana? Hugtakið nær yfir þær áskoranir sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir í nútíma rekstarumhverfi þar sem magn gagna og upplýsinga og hagnýting þeirra skiptir sífellt meira máli. Spurningar eins og; Hvað á að gera við gögnin? Hvar á að geyma þau? Eru þau örugg? Eru þau vel flokkuð og skipulögð og aðgengileg þegar á þeim þarf að halda? Stjórnkerfi upplýsinga svarar þessum spurningum, tryggja skilvirkni og komur í veg fyrir óhöpp. Kynntu þér stjórnkerfi upplýsinga í greininni Information Governance 101: Everything You Need to Know To Get Started in 2023 https://www.jdsupra.com/legalnews/information-governance-101-everything-3639015/

 

Félag um skjalastjórn heldur ráðstefnu um stjórnkerfi upplýsinga 31. ágúst 2023 . Frekari upplýsingar og skráningu má finna hér: https://tix.is/is/event/14892/-etta-arftu-a-vita-ver-m-tin-liggja-i-upplysingunum/

 

Lykilfyrirlesarar búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði og nálgast efnið á ólíkan hátt.

  • Lewis Eisen, alþjóðlegur metsöluhöfundur og fyrirlesari: Making an Information Policy strategic and successful
  • Anthea Seles, sérfræðingur í stafrænni skjalastjórn og varðveislu, Use of Artificial Intelligence in the dissemination of information
  • Manfred Traeger, framkvæmdastjóri og sérfræðingur í stjórnun upplýsinga, A practical guidance for Information Governance – Lessons learned

 

Aðrir fyrirlesarar eru innlendir sérfræðingar sem veita okkur frekari innsýn í sína þekkingu, reynslu og umhverfi. Ráðstefnan er ætluð öllum sem hafa áhuga á, vilja fylgjast með og fræðast um stjórnkerfi upplýsinga. Hún er einnig sérlega gagnleg fyrir alla sem koma að stefnumótun og stjórnun í sínu starfi sem og þeir sem vinna að upplýsingastjórnun hvort sem það varðar gagnastýringu, skjalastjórnun, persónuvernd, upplýsingaöryggi eða stjórnsýslu.