You are currently viewing Þetta þarftu að vita! Verðmætin liggja í upplýsingunum

Þetta þarftu að vita! Verðmætin liggja í upplýsingunum

Þann 2. mars mun Félag um skjalastjórn halda ráðstefnu um þróun og stöðu upplýsinga.

Með vaxandi vitund um mikilvægi upplýsinga í viðskiptum og þjónustu er markviss stjórnun upplýsingaflæðis orðin lykilþáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana.

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er stjórnkerfi upplýsinga (Information Governance), hvar við stöndum, hvert við getum stefnt og hvaða skref við getum tekið í okkar starfsemi.

Fyrirlesarar búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni og munu þau nálgast efnið á ólíkan og fróðlegan hátt.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, dagskrá hennar og upplýsingar um skráningu má finna á síðu ráðstefnunnar https://radstefna.irma.is.