You are currently viewing Ásgerður Kjartansdóttir heiðursfélagi

Ásgerður Kjartansdóttir heiðursfélagi

Við þökkum kærlega fyrir samveruna á 35 ára starfsafmæli Félags um skjalastjórn sem haldið var 8. desember. Mikil gleði og kátína ríkti í Elliðaárdalnum og ekki síður er skemmtikrafturinn og fyrrverandi töframaðurinn Bjarni kom og kitlaði hláturtaugar afmælisgesta. Ekki er loku fyrir það skotið að einhver skjalamál hafi verið rædd og jafnvel leyst enda eru samkomur félagsins tilvaldar til að hitta sína líka, læra og miðla fróðleik og reynslu.

Á þessum tímamörkum var góður félagi, Ásgerður Kjartansdóttir, gerð að heiðursfélaga. Við þökkum Ásgerði fyrir allan þann metnað og vinnu sem hún hefur lagt af mörkum í þágu félagsins og framfara fyrir fagstéttina sem slíka, og fyrir það erum við henni ævinlega þakklát fyr