Gögn eru ein mikilvægasta eign fyrirtækja og grunnur að daglegu starfi okkar. Til að tryggja örugga meðferð þeirra þurfum við að vita hvaða upplýsingar við höfum, hversu viðkvæmar þær eru og hvernig þeim má deila. Öryggisflokkun gagna hjálpar okkur að vernda upplýsingar á réttan hátt, draga úr áhættu og styrkja öryggismenningu fyrirtækisins.
Á þessu námskeiði lærum við hvernig öryggisflokkun virkar, hvers vegna hún skiptir máli og hvernig við notum hana í daglegu starfi – á einfaldan og hagnýtan hátt sem styður vinnuna okkar í stað þess að flækja hana.
Með bestu kveðju,
Stjórn félags um upplýsingastjórnun

